Hjólandi
Já ég er ennþá að hjóla. Þægilegt þar sem ég bý núna svo stutt frá vinnunni (rétt um 10 mín í vinnuna). Hins vegar á ég lítið af útivistarfötum. Er alltaf í sömu ljótu buxunum en á nokkrar peysur til skiptana. Fann hins vegar vel í dag hversu gott það væri að eiga vatnsheldar buxur og aðeins betri peysu. Flíspeysurnar eru samt það góður að þó ég blotni þá verður mér ekki kalt. Spurning núna þar sem fjármálin ættu að fara að batna hvort það opnist ekki gluggi til að bæta úr fataleysi. Sá í dag að það er gat á strigaskónum mínum – fín ending samt á þeim – komið meira en ár síðan ég keypti þá og hef varla farið úr þeim. Græt samt ennþá fínu fínu fínu brúnu strigaskónana mína með frönskum rennilás og bleikum röndum – þeir voru geðsjúkir. Er að spá í að kaupa mér buxur sem heita Ása hjá Cintamani – fúlt samt að það er ekki lengur til peysa sem hét Áslaug – það hefði verið kúl.
Annars þarf ég að endurnýja fataskápinn algjörlega – hef varla keypt mér föt síðan ég flutti heim í denn (er t.d. ennþá í sömu úlpunni). Á samt nokkuð MIKIÐ af fötum inn í skáp sem ég kemst ekki í ENNÞÁ en það er að lagast því mínar eru svo duglegar að hjóla alltaf. Það var þó klaufaskapur í mér um daginn þegar ég týndi hraðamælinum. Núna er hundleiðinlegt að hjóla því ég veit ekki hversu hratt ég fer eða hversu mikið ég er búin að hjóla……..