Týsdagur
Tekið af Vísindavefnum:
Talið er að vikudagarnir hafi borið eftirfarandi nöfn á Íslandi fram á 12. öld.
| sunnudagur | |
| mánadagur | |
| týsdagur | |
| óðinsdagur | |
| þórsdagur | |
| frjádagur | |
| þvottdagur/laugardagur |
Þessi nöfn eru í samræmi við daganöfn annars staðar í Norður-Evrópu. Uppruna þessara nafna er að finna hjá Rómverjum sem töldu að vikudögunum væri stjórnað af föruhnöttunum sól, mána, Mars, Merkúríusi, Júpíter, Venus og Satúrnusi. Germanskar þjóðir þýddu svo og staðfærðu þessi nöfn þegar þau bárust til þeirra.
Eftir kristnitöku reyndi svo kirkjan að koma á notkun eftirfarandi heita í stað gömlu daganafnanna:
| drottinsdagur | |
| annar dagur | |
| þriðji dagur | |
| miðvikudagur | |
| fimmti dagur | |
| föstudagur | |
| laugardagur |
Sum þessara heita festust í málinu en enn höldum við í daga sólar og mána.
Samkvæmt þessu eru vikudagarnir á ensku (Bandaríkin) og á öðrum tungumálum ókristin. Finnst ekkert að því en það væri gaman að segja einhverjum heittrúuðum Bandaríkjamanni frá því – múhahaha
Gæti verið gaman ef einhver útlenskur ofurtrúaður gagnrýni Ísland/íslendinga að benda þeim á þetta