Flutt
Jæja þá er ég flutt og búin að vera í nýja húsnæðinu í viku. Það er samt ótrúlegt dótið sem ég á – held að það sé endalaust og samt var ég að fara úr stúdíóíbúð – ekki skrítið að það var alltaf drasl hjá mér. Arnar, mamma og Ársæll hjálpuðu mér að flytja og eiga þau inni hjá mér STÓRAN greiða. Daginn eftir flutningana vaknaði ég uppi með þessar svakalegu harðsperrur – hef aldrei áður fengið verki í lófana! En það er nú að koma mynd á þetta hjá mér. Er meira að segja búin að taka upp dót sem ég hef ekki notað í mörg ár því ég hafði ekki pláss áður.
Þvottavélin og ísskápurinn komu svo fyrir viku en ég hélt í barnaskap mínum að maðurinn myndi taka upp dótið. Mér tókst að setja ísskápinn í gang en ég þurfti að hringja í Arnar til að fá hjálp við þvottavélina (takk fyrir Arnar). Annars hefur undanfarin vika verið vinna, taka upp úr kössum og svo smá slapp af fyrir framan tv-ið. Á laugardaginn seinasta fór mamma með mér að þrífa gömlu íbúðina svo ég geti skilað henni hreinni. Það gekk ágætlega fyrir sig (takk mamma). Ég er meira að segja orðin svo fullorðin að ég er ekki bara komin með minn eigin ísskáp og þvottavél heldur líka heimasíma – hef að vísu ekki tengt símann ennþá en það verður eflaust gert að lokum. Það er netið sem er mikilvægara ![]()
Það er frábært að búa á þessum stað, ég er enga stund í vinnuna, bara um 10 mín en er um 15 mín á leiðinni heim. Mikill munur þar sem ég var um 30 mín hvora leið áður en ég flutti. Kringlan er líka rétt hjá og því stutt í Bónus.
Svo er bara spurningin hvort ég eigi að ganga frá einhverju dóti eða slappa af upp í sófa í kvöld?
Explore posts in the same categories: Kjaftagangur!
mánudagur, 13 september, 2010 kl. 12:09 am
Til hamingju!