347

Skrifað þriðjudagur, 6 september, 2011 af Ása
Flokkar: Kjaftagangur!

Það eru 347 dagar að næsta Reykjavíkurmaraþoni og í staðin fyrir að gera eitthvað uppbyggilegt eins og hreyfa mig og borða epli sit ég aðallega upp í sófa og borða súkkulaði – ég meina hversu flókið er þetta! Skipta út ávexti fyrir súkkulaði – hljómar einfalt en dísus hvað það er erfitt!

Í staðin fyrir að vera úti að skokka (veðrið er frábært) eða í sundi þá sit ég upp í sófa og borða og borða og borða, er með eilífa löngun sem ég kemst ekki yfir. Það sem ég kemst yfir með að gera er að fara í vinnuna, fara svo heim og beinustu leið í sófann (er að spá í að henda út sófanum og fá mér stól í staðin). Hvernig ég ætla að koma mér yfir þessa leti veit ég ekki en ég þarf víst að standa upp í sófanum……..

æææ geri það á morgun – segir sú lata!

363 dagar

Skrifað Sunnudagur, 21 ágúst, 2011 af Ása
Flokkar: Kjaftagangur!

Það eru 363 dagar í næsta Reykjavíkur maraþon og þá ætla ég að taka aftur þátt í 10K hlaupinu. Í gær fór ég 10K á 86 mín sem mér finnst ágætur tími miða við að ég hef ekki mikið hlaupið um æfina. Á næsta ári ætla ég að fara hringinn undir 60 mín. Ég hef 363 daga til að æfa mig sem ætti að vera nógur tími :)

Það að ég hafi farið 10K í gær er árangur út af fyrir sig. Ég var samt illa sofin því ég vaknaði nóttina áður við nágrannana og var að vinna til 23 kvöldið áður og ætlaði aldrei að sofna. Veit það næst að best er að vinna ekki langt fram á kvöld. Fyrsta markmiðið var samt það að klára 10K og það næsta að vera undir 90 mín og náði ég þessum tveim markmiðum. Svo er ég líka búin núna að standa við áramótaheitið – geri aðrir betur ;)

Samfélagslegur þrýstingur

Skrifað miðvikudagur, 13 október, 2010 af Ása
Flokkar: Kjaftagangur!

Það er margs konar þrýsingur sem kemur frá samfélaginu og einn af þeim er að búa um rúmið sitt. Í áratugi hef ég slegist við þennan þrýsting því ég yfirleitt bý ekki um rúmið mitt en ég slétti samt oft úr sænginni. Ég er t.d. ekkert upp í rúmi nema þegar ég sef eða er lasin. Þar sem ég er ekki lengur í stúdíóíbúð þá loka ég bara hurðinni og enginn sér inn í svefnherbergi. Þess vegna tók ég mig til á sunnudaginn og braut rúmteppið vel og vandlega saman og stakk því upp í skáp. Ég sé engan tilgang í því að rúmteppið sé að þvælast fyrir mér því ekki er breytt úr því á rúmið. Eins asnaleg eins og þessi ákvörðun er þá veitir hún samt ákveðinn létti. Ég er algjörlega hætt að rembast við þennan þrýsting og geri bara það sem ég vil ;)

Góðir hlutir gerast hægt

Skrifað mánudagur, 4 október, 2010 af Ása
Flokkar: Kjaftagangur!

Þoli ekki hvað góðir hlutir gerast alltaf hægt en vondir hlutir gerast á svipstundu. Það tekur á þolinmæðina að bíða. Af hverju er ekki nóg að hreyfa sig vel einu sinni og 5 kg fara. Af hverju er ekki hægt að fara í IKEA og versla alla búðina – það væri sossum hægt en það vantar bara pening til þess að geta tæmt búðina. Væri sossum hægt að taka lán og fara í IKEA en það gerir ekki skynsöm manneskja – sérstaklega ekki sú skynsama manneskja sem fékk yfirdrátt fyrir ísskáp og þvottavél. En mig langar í náttborð, kommóðu og nýjan sófa. Svo þarf ég líka mottu og dót inn á bað og fullt fullt fullt meira……..
Skondið samt hvað maður er aldrei ánægður því það er alltaf eitthvað sem fer í mann. Blehhh blaa og ull :P

Uppbyggilegt

Skrifað fimmtudagur, 30 september, 2010 af Ása
Flokkar: Kjaftagangur!

Hvað með að gera eitthvað eitt uppbyggilegt einu sinni á dag (eða einu sinni í viku). Í dag var útborgunardagur og setti ég heilar 15 þús inn á sparireikning. Ekki stór upphæð en uppbyggilegt því margt smátt gerir eitt stórt. Á morgun ætla ég út að hlaupa (keypti mér hlaupaskó í dag já það er útborgunardagur í dag ;) ) því það er uppbyggilegt fyrir sjálfa mig.

Gerðir þú eitthvað uppbyggilegt í dag? Getur verið hvað sem er :)

Mæli með að flestir lesi þennan pistil og horfi svo á myndbandið

Hjólandi

Skrifað miðvikudagur, 29 september, 2010 af Ása
Flokkar: Kjaftagangur!

Já ég er ennþá að hjóla. Þægilegt þar sem ég bý núna svo stutt frá vinnunni (rétt um 10 mín í vinnuna). Hins vegar á ég lítið af útivistarfötum. Er alltaf í sömu ljótu buxunum en á nokkrar peysur til skiptana. Fann hins vegar vel í dag hversu gott það væri að eiga vatnsheldar buxur og aðeins betri peysu. Flíspeysurnar eru samt það góður að þó ég blotni þá verður mér ekki kalt. Spurning núna þar sem fjármálin ættu að fara að batna hvort það opnist ekki gluggi til að bæta úr fataleysi. Sá í dag að það er gat á strigaskónum mínum – fín ending samt á þeim – komið meira en ár síðan ég keypti þá og hef varla farið úr þeim. Græt samt ennþá fínu fínu fínu brúnu strigaskónana mína með frönskum rennilás og bleikum röndum – þeir voru geðsjúkir. Er að spá í að kaupa mér buxur sem heita Ása hjá Cintamani – fúlt samt að það er ekki lengur til peysa sem hét Áslaug – það hefði verið kúl.
Annars þarf ég að endurnýja fataskápinn algjörlega – hef varla keypt mér föt síðan ég flutti heim í denn (er t.d. ennþá í sömu úlpunni). Á samt nokkuð MIKIÐ af fötum inn í skáp sem ég kemst ekki í ENNÞÁ en það er að lagast því mínar eru svo duglegar að hjóla alltaf. Það var þó klaufaskapur í mér um daginn þegar ég týndi hraðamælinum. Núna er hundleiðinlegt að hjóla því ég veit ekki hversu hratt ég fer eða hversu mikið ég er búin að hjóla……..

Týsdagur

Skrifað þriðjudagur, 28 september, 2010 af Ása
Flokkar: Kjaftagangur!

Tekið af Vísindavefnum:

Talið er að vikudagarnir hafi borið eftirfarandi nöfn á Íslandi fram á 12. öld.

  sunnudagur
  mánadagur
  týsdagur
  óðinsdagur
  þórsdagur
  frjádagur
  þvottdagur/laugardagur

Þessi nöfn eru í samræmi við daganöfn annars staðar í Norður-Evrópu. Uppruna þessara nafna er að finna hjá Rómverjum sem töldu að vikudögunum væri stjórnað af föruhnöttunum sól, mána, Mars, Merkúríusi, Júpíter, Venus og Satúrnusi. Germanskar þjóðir þýddu svo og staðfærðu þessi nöfn þegar þau bárust til þeirra.

Eftir kristnitöku reyndi svo kirkjan að koma á notkun eftirfarandi heita í stað gömlu daganafnanna:

  drottinsdagur
  annar dagur
  þriðji dagur
  miðvikudagur
  fimmti dagur
  föstudagur
  laugardagur

Sum þessara heita festust í málinu en enn höldum við í daga sólar og mána.

Samkvæmt þessu eru vikudagarnir á ensku (Bandaríkin) og á öðrum tungumálum ókristin. Finnst ekkert að því en það væri gaman að segja einhverjum heittrúuðum Bandaríkjamanni frá því – múhahaha ;) Gæti verið gaman ef einhver útlenskur ofurtrúaður gagnrýni Ísland/íslendinga að benda þeim á þetta

pjéningar

Skrifað mánudagur, 27 september, 2010 af Ása
Flokkar: Kjaftagangur!

Díus kræsturinn hvað peningar eru leiðinlegir. Hvert get ég kvartað út af einelti vegna peninga? Þeir vilja nefnilega ekki vera memm! Finn á mér núna að eftir að ég er komin í fulla vinnu þá langar mér í hluti sem ég blokkaði út á meðan ég var í námi því ég hafði ekki efni á þeim – þarf að vinna í happdrættinu (sem ég btw hef ekki unnið í ca. 4 ár) til að hafa efni á öllu sem mig langar í. En það er víst bara útborgað einu sinni í mánuði svo óþolinmóða ég verð að hafa mig hæga og gnísta tönnum á meðan.
Fyrir mér eru peningar eins og líkamsrækt – ég veit alveg hvernig ég á að fara að því að spara peninga en ég bara geri það ekki. Hef ekki agan í sparnað eða líkamsrækt – hugsunin æ ég geri það bara á morgun, næstu viku eða næsta mánuði er hugsunin hjá mér. 
Núna í október ætla ég að vera hörð við mig. Fara í hraðbanka og taka út pening ef ég ætla að kaupa eitthvað og ég kaupi ekkert nema eiga cash. Ákveðin upphæð á að fara í mat og skemmtanir einu sinni í viku. Ég meina þessi uppskrift er svo einföld en það er bara svo auðvelt að fara ekki eftir henni og strauja bara kortið. Að gefa ráð vegna peninga er svo auðvelt en að fara eftir því sjálf er miklu erfiðara. Fjáranum erfitt að spara sér fyrir hlutum í staðin fyrir að taka bara yfirdrátt eða veifa kreditinu. Eins og með allt þá er svo erfitt að byrja……..

Flutt

Skrifað mánudagur, 23 ágúst, 2010 af Ása
Flokkar: Kjaftagangur!

Jæja þá er ég flutt og búin að vera í nýja húsnæðinu í viku. Það er samt ótrúlegt dótið sem ég á – held að það sé endalaust og samt var ég að fara úr stúdíóíbúð – ekki skrítið að það var alltaf drasl hjá mér. Arnar, mamma og Ársæll hjálpuðu mér að flytja og eiga þau inni hjá mér STÓRAN greiða. Daginn eftir flutningana vaknaði ég uppi með þessar svakalegu harðsperrur – hef aldrei áður fengið verki í lófana! En það er nú að koma mynd á þetta hjá mér. Er meira að segja búin að taka upp dót sem ég hef ekki notað í mörg ár því ég hafði ekki pláss áður.
Þvottavélin og ísskápurinn komu svo fyrir viku en ég hélt í barnaskap mínum að maðurinn myndi taka upp dótið. Mér tókst að setja ísskápinn í gang en ég þurfti að hringja í Arnar til að fá hjálp við þvottavélina (takk fyrir Arnar). Annars hefur undanfarin vika verið vinna, taka upp úr kössum og svo smá slapp af fyrir framan tv-ið. Á laugardaginn seinasta fór mamma með mér að þrífa gömlu íbúðina svo ég geti skilað henni hreinni. Það gekk ágætlega fyrir sig (takk mamma). Ég er meira að segja orðin svo fullorðin að ég er ekki bara komin með minn eigin ísskáp og þvottavél heldur líka heimasíma – hef að vísu ekki tengt símann ennþá en það verður eflaust gert að lokum. Það er netið sem er mikilvægara ;)
Það er frábært að búa á þessum stað, ég er enga stund í vinnuna, bara um 10 mín en er um 15 mín á leiðinni heim. Mikill munur þar sem ég var um 30 mín hvora leið áður en ég flutti. Kringlan er líka rétt hjá og því stutt í Bónus.

Svo er bara spurningin hvort ég eigi að ganga frá einhverju dóti eða slappa af upp í sófa í kvöld?

Stóra ég

Skrifað Sunnudagur, 8 ágúst, 2010 af Ása
Flokkar: Kjaftagangur!

Fór í dag og keypti mér ísskáp og þvottavél í FYRSTA skiptið. Eitthvað svo fullorðinslegt ekki satt? Þar sem ég var búin að skoða ELKO síðunnu og margar aðrar síður þegar ég var að hugleiða þessi kaup (já ég geri aldrei neitt nema hugsa um það 300 sinnum) þá fór ég í búðina og athugaði hvort vörurnar voru til sem ég ætlaði að kaupa og bara keypti þær. Þurfti ekkert á sölumanninum að halda. Hlýddi þó mömmu (það gerist stundum!) og keypti ákveðna tegund af þvottavél og svona medium stærð af  ísskáp.
Asnalegasta við þessi kaup voru þau að ég fór og borgaði mikinn pening (held að ég hafi aldrei áður keypt mér eitthvað svona dýrt en þetta var samt ekki svo kostnaðarsamt) en labbaði svo út með ekkert – ekki nema lítinn pakka af þvottaefni! Fæ vörurnar afhentar eftir um það bil viku :)


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.